Snerta sand - hvenær leyft og hvenær bannað
Áður en þú slærð högg að bolta þínum í glompu máttu ekki:
  • Vísvitandi snerta sand í glompunni með hönd, kylfu, hrífu eða öðrum hlutum til að prófa ástand sandsins og öðlast þannig upplýsingar fyrir næsta högg, eða
  • Snerta sand í glompunni með kylfu:
    • Á svæðinu beint framan eða aftan við boltann (nema eins og leyft er við að leita á eðlilegan hátt að boltanum eða við að fjarlægja lausung eða hreyfanlega hindrun),
    • Í æfingasveiflu, eða
    • Í aftursveiflunni fyrir högg.
Að því frátöldu sem lýst er hér að framan máttu:
  • Grafa fæturna niður við að taka sér stöðu fyrir æfingasveiflu eða fyrir höggið,
  • Slétta glompuna til að halda vellinum snyrtilegum,
  • Leggja kylfur, útbúnað eða aðra hluti í glompuna (hvort sem er með því að kasta þeim eða leggja þá niður),
  • Mæla, merkja, lyfta, leggja aftur eða framkvæma aðrar athafnir í samræmi við reglu,
  • Styðja sig við kylfu til að hvíla sig, halda jafnvægi eða forðast fall, eða
  • Slá í sandinn í gremju eða bræði.
Þó færðu almenna vítið ef athafnir þínar við að snerta sandinn bæta aðstæðurnar sem hafa áhrif á högg þitt. Víti fyrir brot á reglu 12.2: Almennt víti.