Týndur bolti - Vitað eða nánast öruggt að bolti er innan vítasvæðis
Ef bolti þinn finnst ekki og það er vitað eða nánast öruggt að boltinn hefur stöðvast innan vítasvæðis máttu taka lausn gegn víti samkvæmt r.
Þú hefur lausnarmöguleikana sem sýndir eru á mynd #1 17.1d (lausn úr gulu vítasvæði) og mynd #2 17.1d (lausn úr rauðu vítasvæði), í öllum tilvikum gegn einu vítahöggi.
MYND #1 17.1d: LAUSN VEGNA BOLTA Í GULU VÍTASVÆÐI
Þegar vitað er eða nánast öruggt að bolti er í gulu vítasvæði og leikmaðurinn vill taka lausn hefur hann tvo kosti, gegn einu vítahöggi. Leikmaðurinn má:
- Taka fjarlægðarlausn með því að leika bolta frá lausnarsvæði sem ræðst af því hvar síðasta högg var slegið.
- Taka aftur á línu lausn með því að láta bolta falla utan vítasvæðisins, með því að hafa punkt X í línu milli holunnar og þar sem boltinn er látinn falla.
MYND #2 17.1d: LAUSN VEGNA BOLTA Í RAUÐU VÍTASVÆÐI
Þegar vitað er eða nánast öruggt að bolti er í rauðu vítasvæði og leikmaðurinn vill taka lausn hefur hann þrjá kosti, gegn einu vítahöggi. Leikmaðurinn má:
- Taka fjarlægðarlausn með því að leika bolta frá lausnarsvæði sem ræðst af því hvar síðasta högg var slegið.
- Taka aftur á línu lausn með því að láta bolta falla utan vítasvæðisins, með því að hafa punkt X í línu milli holunnar og þar sem boltinn er látinn falla.
- Taka hliðarlausn (eingöngu í rauðum vítasvæðum). Viðmiðunarstaðurinn fyrir hliðarlausn er staður X, láta verður bolta falla og leika honum innan lausnarsvæðis sem er tvær kylfulengdir, en ekki nær holu en staður X.
Hins vegar, ef hvorki er vitað né nánast öruggt að bolti þinn hafi stöðvast innan vítasvæðis og botlinn er týndur verður þú að taka fjarlægðarlausn.