Tilgangur: Regla 11 fjallar um hvað eigi að gera ef bolti leikmannsins er á hreyfingu og hittir einstakling, dýr, útbúnað eða annað á vellinum. Þegar þetta gerist fyrir slysni er það vítalaust og leikmaðurinn þarf oftast að sætta sig við afleiðingarnar, hvort sem þær eru hagstæðar honum eða ekki, og leika boltanum þar sem hann stöðvast. Samkvæmt reglunni má leikmaður heldur ekki aðhafast neitt vísvitandi til að hafa áhrif á hvar bolti sem er á hreyfingu kunni að stöðvast.
Þessi regla á alltaf við þegar bolti í leik er á hreyfingu (hvort sem er eftir högg eða af öðrum orsökum), nema þegar bolti hefur verið látinn falla innan lausnarsvæðis og hefur enn ekki stöðvast. Fjallað er um þær kringumstæður í reglu 14.3.
Ef bolti leikmanns er á hreyfingu og hittir af slysni einhvern einstakling eða utanaðkomandi áhrif:
Undantekning - Bolta leikið á flötinni í höggleik: Ef bolti leikmanns er á hreyfingu og hittir kyrrstæðan bolta á flötinni og báðir boltarnir voru á flötinni fyrir höggið, fær leikmaðurinn almenna vítið (tvö vítahögg).
Ef bolti leikmanns er á hreyfingu og hittir af slysni einhvern einstakling eða utanaðkomandi áhrif verður að leika boltanum þar sem hann liggur, nema í tveimur tilvikum:
Undantekning 1 – Þegar bolti, sem leikið var annars staðar en af flötinni, stöðvast á einstaklingi, dýri eða utanaðkomandi áhrifum á hreyfingu: Leikmaðurinn má ekki leika boltanum þar sem hann liggur. Þess í stað verður leikmaðurinn að taka lausn:
Undantekning 2 – Þegar bolti, sem leikið var af flötinni, hittir af slysni einstakling, dýr eða hreyfanlega hindrun (þar á meðal annan bolta á hreyfingu) á flötinni: Höggið gildir ekki og leggja verður upphaflega boltann eða annan bolta aftur á upphaflegan stað (sem verður að áætla ef hann er óþekktur) (sjá reglu 14.2), nema í þessum tveimur tilvikum:
Víti fyrir að leika bolta sem ranglega hefur verið skipt um eða að leika bolta frá röngum stað, andstætt reglu 11.1: Almennt víti samkvæmt reglu 6.3b eða 14.7a.
Ef ein athöfn eða tengdar athafnir leiða til brota fleiri en einnar reglu, sjá reglu 1.3c(4).
Þessi regla á aðeins við þegar vitað er eða nánast öruggt að einhver einstaklingur vísvitandi sveigði bolta leikmanns úr leið eða stöðvaði boltann, sem merkir að:
Undantekning – Bolti vísvitandi sveigður úr leið eða stöðvaður í holukeppni þegar óraunhæft er að hann hafni í holu: Ef bolti mótherja er á hreyfingu og er vísvitandi sveigður úr leið eða stöðvaður þegar engar raunhæfar líkur eru á að boltinn fari í holu og þegar það er gert annaðhvort sem gjöf eða þegar boltinn þurfti að hafna í holu til að jafna holuna, er fjallað um það í reglu 3.2a(1) eða 3.2b(1), ekki í þessari reglu.
Varðandi rétt leikmanns til að láta lyfta bolta eða boltamerki áður en högg er slegið ef hann hefur ástæðu til að ætla að boltinn eða boltamerkið gætu aðstoðað við eða truflað leik, sjá reglu 15.3.
Undantekning - Bolti hreyfist í vatni: Það er vítalaust þótt leikmaður lyfti bolta sínum sem hreyfist í tímabundnu vatni eða í vatni innan vítasvæðis, þegar hann tekur lausn samkvæmt reglu 16.1 eða 17 (sjá undantekningu 3 við reglu 10.1d).
Sjá reglur 22.2 (í fjórmenningi má hvor samherji koma fram fyrir hönd liðsins og litið er á athafnir samherjans sem athafnir leikmannsins), 23.5 (í fjórleik má hvor samherji koma fram fyrir hönd liðsins og litið er á athafnir samherjans varðandi bolta eða útbúnað leikmannsins sem athafnir leikmannsins).
Ef það er vitað eða nánast öruggt að bolti sem var á hreyfingu hefur vísvitandi verið sveigður úr leið eða stöðvaður af einhverjum (hvort sem boltinn hefur fundist eða ekki) má ekki leika boltanum þar sem hann liggur. Þess í stað verður leikmaðurinn að taka lausn:
(1) Högg slegið annars staðar en af flötinni. Leikmaðurinn verður að taka lausn sem ræðst af staðnum þar sem áætlað er að boltinn hefði stöðvast ef hann hefði ekki verið sveigður úr leið eða stöðvaður:
(2) Högg slegið af flötinni. Höggið gildir ekki og leggja verður upphaflega boltann eða annan bolta aftur á upphaflega staðinn (sem þarf að áætla ef hann er óþekktur) (sjá reglu 14.2).
Víti fyrir að leika bolta sem ranglega hefur verið skipt um eða að leika bolta frá röngum stað, andstætt reglu 11.2: Almennt víti samkvæmt reglu 6.3b eða 14.7a.
Ef ein athöfn eða tengdar athafnir leiða til brota fleiri en einnar reglu, sjá reglu 1.3c(4).
Á meðan bolti er á hreyfingu má leikmaður ekki vísvitandi gera neitt af eftirtöldu til að hafa áhrif á hvar boltinn (hvort sem um er að ræða bolta leikmannsins eða annars leikmanns) kunni að stöðvast:
Undantekning - Að færa flaggstöng, kyrrstæðan bolta á flötinni og annan útbúnað leikmanns: Þessi regla bannar leikmanni ekki að lyfta eða færa:
Regla 13.2 fjallar um að fjarlæga flaggstöngina úr holunni (þar á meðal að gæta flaggstangarinnar) á meðan bolti er á hreyfingu, ekki þessi regla.
Víti fyrir brot á reglu 11.3: Almennt víti.
Sjá reglur 22.2 (í fjórmenningi má hvor samherji koma fram fyrir hönd liðsins og litið er á athafnir samherjans sem athafnir leikmannsins), 23.5 (í fjórleik má hvor samherji koma fram fyrir hönd liðsins og litið er á athafnir samherjans varðandi bolta eða útbúnað leikmannsins sem athafnir leikmannsins).
Staða bolta leikmanns þegar boltinn liggur á vellinum og er í notkun við leik á holu:
Bolti sem er ekki í leik er rangur bolti.
Leikmaðurinn getur ekki haft nema einn bolta í leik í einu. (Sjá reglu 6.3d varðandi þau afmörkuðu tilvik þegar leikmaður má leika fleiri en einum bolta á sama tíma á holu).
Þegar reglurnar vísa til að bolti sé kyrrstæður eða á hreyfingu merkir það að boltinn sé í leik.
Þegar boltamerki hefur verið lagt niður til að merkja staðsetningu bolta í leik:
Hreyfing kylfunnar fram á við til þess að hitta boltann.
Þó hefur högg ekki verið slegið ef leikmaðurinn:
Hugtakið „að leika boltanum“ í reglunum hefur sömu merkingu og að slá högg.
Skori leikmannsins á holu eða í umferð er lýst sem fjölda „högga“ eða „leikin högg“, sem merkir bæði högg sem leikmaðurinn slær og öll vítahögg sem hann kann að hafa fengið (sjá reglu 3.1c).
Túlkun Högg/1 - Að ákvarða hvort högg var slegið
Ef leikmaður byrjar framsveifluna með kylfu í þeim tilgangi að hitta boltann telst það högg, jafnvel þegar:
Athafnir leikmannsins teljast ekki högg í eftirfarandi tilvikum:
Að halda á bolta og sleppa honum þannig að hann falli í loftinu, í þeim tilgangi að boltinn verði í leik.
Sleppi leikmaðurinn bolta án þess að ætla að setja hann í leik hefur boltinn ekki verið látinn falla og er ekki í leik (sjá reglu 14.4).
Í sérhverri lausnarreglu er vísað til ákveðins lausnarsvæðis þar sem láta verður boltann falla og þar sem hann verður að stöðvast.
Við að taka lausn verður leikmaðurinn að sleppa boltanum úr hnéhæð þannig að boltinn:
Svæðið þar sem leikmaður verður að láta bolta falla þegar hann tekur lausn samkvæmt reglu. Í hverri lausnarreglu er ætlast til að leikmaðurinn noti tiltekið lausnarsvæði, en stærð þess og staðsetning ræðst af þrennu:
Við að nota kylfulengdir til að ákvarða stærð lausnarsvæðis má leikmaðurinn mæla beint yfir skurð, holu eða sambærilega hluti og beint yfir eða í gegnum hluti (svo sem tré, girðingar, veggi, göng, niðurföll eða vökvunarstúta), en má ekki mæla beint í gegnum hallandi jörðu.
Sjá Verklag nefnda, hluta 2I (nefndin má leyfa eða krefjast þess að leikmaður noti fallreit sem lausnarsvæði þegar tiltekin lausn er tekin).
Skýring - Að ákvarða hvort bolti er innan lausnarsvæðis
Þegar ákvarðað er hvort bolti hafi stöðvast innan lausnarsvæðis (þ.e. innan einnar eða tveggja kylfulengda frá viðmiðunarstað, eftir því hvaða reglu er verið að beita) er boltinn innan lausnarsvæðisins ef einhver hluti boltans er innan einnar eða tveggja kylfulengda frá viðmiðunarstaðnum. Hins vegar er bolti ekki innan lausnarsvæðis ef einhver hluti boltans er nær holunni en viðmiðunarstaðurinn eða ef einhver hluti boltans hefur truflun frá aðstæðunum sem verið er að taka vítalausa lausn frá.(Skýringu bætt við 12/2018)
Allir eftirfarandi einstaklingar eða hlutir sem geta haft áhrif á bolta leikmanns, útbúnað eða völlinn:
Túlkun Utanaðkomandi áhrif/1 – Staða lofts og vatns sem er blásið af vélum
Þótt vindur og vatn séu hluti náttúruaflanna og ekki utanaðkomandi áhrif er manngerður blástur lofts og vatns utanaðkomandi áhrif.
Dæmi:
Einstaklingurinn sem leikmaður keppir við í holukeppni. Hugtakið mótherji á einungis við í holukeppni.
Sá sem aðstoðar leikmann á meðan umferð er leikin, þar á meðal á eftirfarandi hátt:
Kylfuberi má einnig aðstoða leikmanninn á annan hátt eins og leyft er í reglunum (sjá reglu 10.3b).
Allt sem er notað, klæðst, haldið á eða borið af leikmanninum eða kylfubera hans.
Hlutir sem eru notaðir til að halda vellinum snyrtilegum, svo sem hrífur, eru aðeins útbúnaður á meðan haldið er á þeim eða þeir bornir af leikmanninum eða kylfubera hans.
Túlkun Útbúnaður/1 – Staða hluta sem einhver annar ber fyrir leikmanninn
Hlutir, aðrir en kylfur, sem einhver annar en leikmaðurinn eða kylfuberi hans ber eru utanaðkomandi áhrif jafnvel þótt þeir tilheyri leikmanninum. Hins vegar verða þeir hluti útbúnaðar leikmannsins um leið og verða í fórum leikmannsins eða kylfubera hans.
Til dæmis, ef leikmaður biður áhorfanda um að bera regnhlíf sína fyrir sig er regnhlífin utanaðkomandi áhrif á meðan hún er í fórum áhorfandans. Hins vegar, ef áhorfandinn afhendir leikmanninum regnhlífina verður hún hluti af útbúnaði leikmannsins.
Svæði á holunni sem leikmaður er að leika, sem:
Holan sem leikmaðurinn reynir að leika boltanum í er á flötinni. Flötin er eitt fimm skilgreindra svæða vallarins. Flatir annarra hola (sem leikmaðurinn er ekki að leika á sama tíma) eru rangar flatir og hluti almenna svæðisins.
Jaðar flatar ákvarðast af því hvar hægt er að sjá að svæðið sem er sérstaklega útbúið fyrir pútt hefst (svo sem þar sem gras hefur greinilega verið slegið til að sýna mörkin), nema nefndin skilgreini jaðarinn á annan hátt (svo sem með línum eða punktum).
Ef tvöföld flöt er notuð fyrir tvær ólíkar holur:
Þó getur nefndin skilgreint mörk sem skipta tvöföldu flötinni í tvær aðskildar flatir, þannig að þegar leikmaður leikur aðra holuna er sá hluti tvöföldu flatarinnar sem tilheyrir hinni holunni röng flöt.

Sérhver lifandi meðlimur dýraríkisins (annar en fólk), þar á meðal spendýr, fuglar, skriðdýr, froskdýr og hryggleysingjar (svo sem ormar, skordýr, köngulær og krabbadýr).
Allir eftirfarandi einstaklingar eða hlutir sem geta haft áhrif á bolta leikmanns, útbúnað eða völlinn:
Túlkun Utanaðkomandi áhrif/1 – Staða lofts og vatns sem er blásið af vélum
Þótt vindur og vatn séu hluti náttúruaflanna og ekki utanaðkomandi áhrif er manngerður blástur lofts og vatns utanaðkomandi áhrif.
Dæmi:
Lengd lengstu kylfunnar af þeim 14 (eða færri) sem leikmaðurinn hefur í fórum sínum á meðan umferðin er leikin (eins og leyft er í reglu 4.1b(1)), annarrar en pútters.
Til dæmis, ef lengsta kylfan (önnur en pútter) sem leikmaður hefur á meðan hann leikur umferð er 43 tommu (109,22 cm) langt teigtré er kylfulengdin 43 tommur fyrir þann leikmann í þeirri umferð.
Kylfulengdir eru notaðar til að skilgreina teig leikmannsins á hverri holu og til að ákvarða stærð lausnarsvæðis leikmannsins þegar hann tekur lausn samkvæmt reglunum.
Túlkun Kylfulengd/1 – Merking „kylfulengdar“ við mælingu
Þegar mælt er til að ákvarða lausnarsvæði er heildarlengd kylfunnar notuð, frá tá hennar að enda gripsins. Hins vegar, ef hlíf er yfir kylfuhausnum eða einhver hlutur er áfastur gripinu eru þeir ekki innifaldir þegar kylfan er notuð við mælingar.
Túlkun Kylfulengd/2 – Hvernig á að mæla þegar lengsta kylfan brotnar
Ef lengsta kylfan sem leikmaðurinn hefur í umferðinni brotnar er brotna kylfan samt sem áður notuð áfram til að ákvarða stærð lausnarsvæða leikmannsins. Hins vegar, ef lengsta kylfan brotnar og leikmanninum er heimilt að skipta henni út fyrir nýja kylfu (undantekning við reglu 4.1b(3)) og hann gerir það er ekki lengur litið á brotnu kylfuna sem lengstu kylfu leikmannsins.
Ef leikmaðurinn hefur umferð með færri en 14 kylfum og ákveður svo að bæta við kylfu sem er lengri en kylfurnar sem hann hóf leik með er nýja kylfan notuð við mælingar, svo fremi að hún sé ekki pútter.
Skýring - Merking hugtaksins „kylfulengd“ í leik samherja
Í leikformum þar sem samherjar koma við sögu má nota lengstu kylfu annars hvors samherjans, aðra en pútter, til að skilgreina stærð teigsins eða ákvarða stærð lausnarsvæðis.
(Skýringu bætt við 12/2018)
Þau fimm skilgreindu svæði sem eru á vellinum:
Lokastaðurinn á flötinni fyrir holuna sem verið er að leika:
Orðið „hola“ (þegar það er ekki notað sem skáletruð skilgreining) er notað víðsvegar í reglunum til að merkja þann hluta vallarins sem tengist tilteknum teig, flöt og holu. Leikur á holu hefst á teignum og lýkur þegar boltinn er í holu á flötinni (eða þegar reglurnar ákvarða að holunni sé lokið á annan hátt).

Að leggja bolta með því að setja hann niður og sleppa honum, í þeim tilgangi að boltinn verði í leik.
Setji leikmaðurinn boltann niður án þess að ætla boltanum að verða í leik hefur boltinn ekki verið lagður aftur og er ekki í leik (sjá reglu 14.4).
Þegar regla krefst þess að bolti sé lagður aftur ákvarðar reglan tiltekinn stað þar sem verður að leggja boltann aftur.
Túlkun Leggja aftur/1 – Ekki er hægt að leggja bolta aftur með kylfu
Til að bolti sé lagður aftur á réttan hátt verður að setja hann niður og sleppa honum. Þetta merkir að leikmaðurinn verður að nota hönd til að setja boltann aftur í leik á staðinn þaðan sem honum var lyft eða hann hreyfður.
Til dæmis, ef leikmaður lyftir bolta sínum af flötinni og leggur hann frá sér má leikmaðurinn ekki leggja boltann aftur með því að rúlla honum á réttan stað með kylfu. Geri hann það var boltinn ekki lagður aftur á réttan hátt og leikmaðurinn fær eitt högg í víti samkvæmt reglu 14.2b(2) (Hvernig leggja á bolta aftur) ef mistökin eru ekki leiðrétt áður en höggið er slegið.
Hreyfing kylfunnar fram á við til þess að hitta boltann.
Þó hefur högg ekki verið slegið ef leikmaðurinn:
Hugtakið „að leika boltanum“ í reglunum hefur sömu merkingu og að slá högg.
Skori leikmannsins á holu eða í umferð er lýst sem fjölda „högga“ eða „leikin högg“, sem merkir bæði högg sem leikmaðurinn slær og öll vítahögg sem hann kann að hafa fengið (sjá reglu 3.1c).
Túlkun Högg/1 - Að ákvarða hvort högg var slegið
Ef leikmaður byrjar framsveifluna með kylfu í þeim tilgangi að hitta boltann telst það högg, jafnvel þegar:
Athafnir leikmannsins teljast ekki högg í eftirfarandi tilvikum:
Að leggja bolta með því að setja hann niður og sleppa honum, í þeim tilgangi að boltinn verði í leik.
Setji leikmaðurinn boltann niður án þess að ætla boltanum að verða í leik hefur boltinn ekki verið lagður aftur og er ekki í leik (sjá reglu 14.4).
Þegar regla krefst þess að bolti sé lagður aftur ákvarðar reglan tiltekinn stað þar sem verður að leggja boltann aftur.
Túlkun Leggja aftur/1 – Ekki er hægt að leggja bolta aftur með kylfu
Til að bolti sé lagður aftur á réttan hátt verður að setja hann niður og sleppa honum. Þetta merkir að leikmaðurinn verður að nota hönd til að setja boltann aftur í leik á staðinn þaðan sem honum var lyft eða hann hreyfður.
Til dæmis, ef leikmaður lyftir bolta sínum af flötinni og leggur hann frá sér má leikmaðurinn ekki leggja boltann aftur með því að rúlla honum á réttan stað með kylfu. Geri hann það var boltinn ekki lagður aftur á réttan hátt og leikmaðurinn fær eitt högg í víti samkvæmt reglu 14.2b(2) (Hvernig leggja á bolta aftur) ef mistökin eru ekki leiðrétt áður en höggið er slegið.
Hreyfing kylfunnar fram á við til þess að hitta boltann.
Þó hefur högg ekki verið slegið ef leikmaðurinn:
Hugtakið „að leika boltanum“ í reglunum hefur sömu merkingu og að slá högg.
Skori leikmannsins á holu eða í umferð er lýst sem fjölda „högga“ eða „leikin högg“, sem merkir bæði högg sem leikmaðurinn slær og öll vítahögg sem hann kann að hafa fengið (sjá reglu 3.1c).
Túlkun Högg/1 - Að ákvarða hvort högg var slegið
Ef leikmaður byrjar framsveifluna með kylfu í þeim tilgangi að hitta boltann telst það högg, jafnvel þegar:
Athafnir leikmannsins teljast ekki högg í eftirfarandi tilvikum:
Leikform þar sem leikmaður eða lið keppir við alla aðra leikmenn eða lið í keppninni.
Í venjulegu formi höggleiks (sjá reglu 3.3):
Önnur form höggleiks með öðrum aðferðum við skorun eru Stableford, hámarksskor og par/skolli (sjá reglu 21).
Hægt er að leika öll form höggleiks sem einstaklingskeppni (hver leikmaður keppir sjálfstætt) eða í keppnum með liðum samherja (fjórmenningur eða fjórleikur).
Að skipta um boltann sem leikmaðurinn notar við að leika holu, með því að láta annan bolta verða í leik.
Leikmaðurinn hefur skipt um bolta þegar hann setur nýja boltann í leik á einhvern hátt (sjá reglu 14.4) í stað upphaflegs bolta leikmannsins, hvort sem upphaflegi boltinn var:
Skiptibolti verður bolti í leik jafnvel þótt:
Sérhver staður á vellinum, annar en þar sem leikmaðurinn á eða má leika bolta sínum samkvæmt reglunum.
Dæmi um leik frá röngum stað eru:
Að leika bolta utan teigsins við að hefja leika á holu eða við að leiðrétta slík mistök felur ekki í sér að leika frá röngum stað (sjá reglu 6.1b).
Viðmið til að ákveða hvað gerðist varðandi bolta leikmanns, til dæmis hvort boltinn stöðvaðist innan vítasvæðis, hvort hann hreyfðist eða hvað olli því að hann hreyfðist.
Vitað eða nánast öruggt þýðir meira en bara hugsanlegt eða líklegt. Það þýðir að annaðhvort:
Með „öllum auðfáanlegum upplýsingum“ er meðal annars átt við allar upplýsingar sem leikmaðurinn býr yfir og allar upplýsingar sem hann getur aflað sér án mikillar fyrirhafnar og án þess að valda óhæfilegri töf á leik.
Túlkun Vitað eða nánast öruggt/1 - Að beita viðmiði um „vitað eða nánast öruggt“ þegar bolti hreyfist
Þegar ekki er „vitað“ hvað olli hreyfingu bolta verður að líta til allra upplýsinga sem eru auðfáanlegar og meta slík gögn til að ákvarða hvort það sé „nánast öruggt“ að leikmaðurinn, mótherji eða utanaðkomandi áhrif hafi valdið hreyfingu boltans.
Þótt það fari eftir kringumstæðum er eftirfarandi dæmi um hugsanlegar auðfáanlegar upplýsingar:
Túlkun Vitað eða nánast öruggt/2 – Nánast örugg vitneskja skiptir ekki máli ef hún verður ljós eftir að þriggja mínútna leitartíminn er liðinn
Ákvörðun um hvort eitthvað er vitað eða nánast öruggt verður að byggja á upplýsingum sem eru ljósar leikmanninum við lok þriggja mínútna leitartímans.
Eftirfarandi eru dæmi um tilvik þar sem síðari vitneskja leikmannsins skiptir ekki máli:
Leikmaðurinn verður að taka fjarlægðarlausn vegna týnds bolta (regla 18.2b) því sú staðreynd að utanaðkomandi áhrif hreyfðu boltann kom ekki í ljós fyrr en eftir að leitartíminn rann út
Túlkun Vitað eða nánast öruggt/3 – Leikmaður veit ekki að bolta hans var leikið af öðrum leikmanni
Það verður að vera vitað eða nánast öruggt að bolta leikmanns hafi verið leikið af öðrum leikmanni sem röngum bolta, til að líta megi svo á að boltinn hafi verið hreyfður og að hann sé ekki týndur.
Til dæmis, í höggleik, slá leikmaður A og leikmaður B teighögg sín á sömu slóðir. Leikmaður A finnur bolta og leikur honum. Leikmaður B gengur áfram til að leita að sínum bolta en finnur hann ekki. Eftir þrjár mínútur leggur leikmaður B af stað til baka á teiginn til að leika öðrum bolta. Á leiðinni finnur leikmaður B bolta leikmanns A og veit þá að leikmaður A hefur leikið hans bolta.
Leikmaður A fær almenna vítið fyrir að leika röngum bolta og verður að leika næst sínum eigin bolta (regla 6.3c). Bolti leikmanns A var ekki týndur þótt báðir leikmennirnir hafi leitað í meira en þrjár mínútur því leikmaður A hóf ekki leit að sínum bolta, leitin var að bolta leikmanns B. Varðandi bolta leikmanns B var sá bolti týndur og leikmaður B verður að setja annan bolta í leik með fjarlægðarvíti (regla 18.2b), því hvorki var vitað né nánast öruggt þegar þriggja mínútna leitartíminn rann út að annar leikmaður hafi leikið boltanum.
Allt sem er notað, klæðst, haldið á eða borið af leikmanninum eða kylfubera hans.
Hlutir sem eru notaðir til að halda vellinum snyrtilegum, svo sem hrífur, eru aðeins útbúnaður á meðan haldið er á þeim eða þeir bornir af leikmanninum eða kylfubera hans.
Túlkun Útbúnaður/1 – Staða hluta sem einhver annar ber fyrir leikmanninn
Hlutir, aðrir en kylfur, sem einhver annar en leikmaðurinn eða kylfuberi hans ber eru utanaðkomandi áhrif jafnvel þótt þeir tilheyri leikmanninum. Hins vegar verða þeir hluti útbúnaðar leikmannsins um leið og verða í fórum leikmannsins eða kylfubera hans.
Til dæmis, ef leikmaður biður áhorfanda um að bera regnhlíf sína fyrir sig er regnhlífin utanaðkomandi áhrif á meðan hún er í fórum áhorfandans. Hins vegar, ef áhorfandinn afhendir leikmanninum regnhlífina verður hún hluti af útbúnaði leikmannsins.
Manngerður hlutur þegar hann er notaður til að merkja staðsetningu bolta sem ætlunin er að lyfta, svo sem tí, mynt, hlutur sem er búinn til sem boltamerki eða annar smáhlutur sem tilheyrir útbúnaði.
Þegar regla vísar til þess að boltamerki hafi hreyfst er átt við boltamerki sem búið var að leggja á völlinn til að merkja staðsetningu bolta sem hefur verið lyft, en ekki enn verið lagður aftur.
Sá sem aðstoðar leikmann á meðan umferð er leikin, þar á meðal á eftirfarandi hátt:
Kylfuberi má einnig aðstoða leikmanninn á annan hátt eins og leyft er í reglunum (sjá reglu 10.3b).
Allt sem er notað, klæðst, haldið á eða borið af leikmanninum eða kylfubera hans.
Hlutir sem eru notaðir til að halda vellinum snyrtilegum, svo sem hrífur, eru aðeins útbúnaður á meðan haldið er á þeim eða þeir bornir af leikmanninum eða kylfubera hans.
Túlkun Útbúnaður/1 – Staða hluta sem einhver annar ber fyrir leikmanninn
Hlutir, aðrir en kylfur, sem einhver annar en leikmaðurinn eða kylfuberi hans ber eru utanaðkomandi áhrif jafnvel þótt þeir tilheyri leikmanninum. Hins vegar verða þeir hluti útbúnaðar leikmannsins um leið og verða í fórum leikmannsins eða kylfubera hans.
Til dæmis, ef leikmaður biður áhorfanda um að bera regnhlíf sína fyrir sig er regnhlífin utanaðkomandi áhrif á meðan hún er í fórum áhorfandans. Hins vegar, ef áhorfandinn afhendir leikmanninum regnhlífina verður hún hluti af útbúnaði leikmannsins.
Einstaklingurinn sem leikmaður keppir við í holukeppni. Hugtakið mótherji á einungis við í holukeppni.
Þegar boltinn er kyrrstæður í holunni eftir högg og allur boltinn er neðan yfirborðs flatarinnar.
Þegar reglurnar vísa til „að ljúka holu“ eða „holu lokið“ merkir það að bolti leikmannsins sé í holu.
Í því sérstaka tilviki að bolti hvílir upp við flaggstöngina í holunni, sjá reglu 13.2c (litið er svo á að boltinn sé í holu ef einhver hluti boltans er neðan yfirborðs flatarinnar).
Túlkun Í holu/1 – Allur boltinn þarf að vera neðan yfirborðsins til að teljast í holu þegar boltinn er sokkinn í kanti holunnar
Þegar bolti er sokkinn í kanti holunnar og boltinn er ekki allur neðan yfirborðs flatarinnar er boltinn ekki í holu. Þetta gildir jafnvel þótt boltinn snerti flaggstöngina.
Túlkun Í holu/2 – Bolti telst í holu jafnvel þótt hann sé ekki „kyrrstæður“
Orðið „kyrrstæður“ í skilgreiningu á í holu er notað til að gera ljóst að ef bolti fer í holuna og skoppar upp úr henni aftur er boltinn ekki í holu.
Hins vegar, ef leikmaður fjarlægir bolta úr holunni á meðan boltinn er enn á hreyfingu (til dæmis þegar hann skröltir í botni holunnar) telst boltinn í holu þrátt fyrir að hann sé ekki kyrrstæður í holunni.

Öll tímabundin uppsöfnun vatns á yfirborði jarðar (svo sem pollar eftir rigningu eða vökvun, eða yfirfall frá vatnasvæði) sem:
Ekki nægir að jörðin sé einungis vot, drullug eða mjúk eða að vatnið sé sýnilegt rétt á meðan leikmaðurinn stígur á jörðina. Uppsöfnun vatns verður að sjást annaðhvort áður en eða eftir að staða er tekin.
Sértilvik:
Svæði þar sem lausn er heimil gegn einu vítahöggi ef bolti leikmannsins hafnar þar.
Vítasvæði er:
Vítasvæði er eitt fimm skilgreindra svæða vallarins.
Tegundir vítasvæða eru tvær, aðgreindar með litnum sem notaður er til að merkja þau:
Ef litur vítasvæðis hefur ekki verið merktur eða tilgreindur af nefndinni er litið á svæðið sem rautt vítasvæði.
Jaðar vítasvæðis framlengist upp frá jörðu og niður fyrir yfirborð jarðar:
Jaðar vítasvæðis ætti að skilgreina með stikum, línum eða áþreifanlegum einkennum:
Þegar jaðar vítasvæðis er skilgreindur með línum eða áþreifanlegum einkennum má nota stikur til að sýna hvar vítasvæðið er, en stikurnar hafa þá enga aðra merkingu.
Þegar jaðar vatnasvæðis er ekki skilgreindur af nefndinni afmarkast jaðar þess vítasvæðis af náttúrulegum mörkum (þar sem jörð hallar að lægðinni sem getur innihaldið vatnið).
Ef opinn vatnsfarvegur er að jafnaði þurr (svo sem drenskurður eða affallssvæði sem er þurrt nema í miklum rigningum) getur nefndin skilgreint svæðið sem hluta almenna svæðisins (sem merkir að það er ekki vítasvæði).
Leikform þar sem tveir samherjar keppa sem lið með því að leika einum bolta til skiptis á hverri holu.
Fjórmenning má leika sem holukeppni á milli eins liðs tveggja samherja og annars liðs tveggja samherja eða sem höggleik á milli margra liða tveggja samherja.
Tveir eða fleiri samherjar sem keppa saman í umferð holukeppni eða höggleiks.
Hver hópur samherja er lið, hvort sem hver samherji leikur eigin bolta (fjórleikur) eða samherjarnir leika einum bolta (fjórmenningur).
Lið er ekki sama og sveit. Í sveitakeppnum samanstendur sveit af leikmönnum sem keppa sem einstaklingar eða sem lið.
Leikform þar sem lið tveggja samherja keppa og hver leikmaður leikur sínum bolta. Skor liðs á holu er lægra skor samherjanna tveggja á holunni.
Fjórleik má leika sem holukeppni á milli eins liðs tveggja samherja og annars liðs tveggja samherja eða sem höggleik á milli margra liða tveggja samherja.
Tveir eða fleiri samherjar sem keppa saman í umferð holukeppni eða höggleiks.
Hver hópur samherja er lið, hvort sem hver samherji leikur eigin bolta (fjórleikur) eða samherjarnir leika einum bolta (fjórmenningur).
Lið er ekki sama og sveit. Í sveitakeppnum samanstendur sveit af leikmönnum sem keppa sem einstaklingar eða sem lið.
Allt sem er notað, klæðst, haldið á eða borið af leikmanninum eða kylfubera hans.
Hlutir sem eru notaðir til að halda vellinum snyrtilegum, svo sem hrífur, eru aðeins útbúnaður á meðan haldið er á þeim eða þeir bornir af leikmanninum eða kylfubera hans.
Túlkun Útbúnaður/1 – Staða hluta sem einhver annar ber fyrir leikmanninn
Hlutir, aðrir en kylfur, sem einhver annar en leikmaðurinn eða kylfuberi hans ber eru utanaðkomandi áhrif jafnvel þótt þeir tilheyri leikmanninum. Hins vegar verða þeir hluti útbúnaðar leikmannsins um leið og verða í fórum leikmannsins eða kylfubera hans.
Til dæmis, ef leikmaður biður áhorfanda um að bera regnhlíf sína fyrir sig er regnhlífin utanaðkomandi áhrif á meðan hún er í fórum áhorfandans. Hins vegar, ef áhorfandinn afhendir leikmanninum regnhlífina verður hún hluti af útbúnaði leikmannsins.
Viðmið til að ákveða hvað gerðist varðandi bolta leikmanns, til dæmis hvort boltinn stöðvaðist innan vítasvæðis, hvort hann hreyfðist eða hvað olli því að hann hreyfðist.
Vitað eða nánast öruggt þýðir meira en bara hugsanlegt eða líklegt. Það þýðir að annaðhvort:
Með „öllum auðfáanlegum upplýsingum“ er meðal annars átt við allar upplýsingar sem leikmaðurinn býr yfir og allar upplýsingar sem hann getur aflað sér án mikillar fyrirhafnar og án þess að valda óhæfilegri töf á leik.
Túlkun Vitað eða nánast öruggt/1 - Að beita viðmiði um „vitað eða nánast öruggt“ þegar bolti hreyfist
Þegar ekki er „vitað“ hvað olli hreyfingu bolta verður að líta til allra upplýsinga sem eru auðfáanlegar og meta slík gögn til að ákvarða hvort það sé „nánast öruggt“ að leikmaðurinn, mótherji eða utanaðkomandi áhrif hafi valdið hreyfingu boltans.
Þótt það fari eftir kringumstæðum er eftirfarandi dæmi um hugsanlegar auðfáanlegar upplýsingar:
Túlkun Vitað eða nánast öruggt/2 – Nánast örugg vitneskja skiptir ekki máli ef hún verður ljós eftir að þriggja mínútna leitartíminn er liðinn
Ákvörðun um hvort eitthvað er vitað eða nánast öruggt verður að byggja á upplýsingum sem eru ljósar leikmanninum við lok þriggja mínútna leitartímans.
Eftirfarandi eru dæmi um tilvik þar sem síðari vitneskja leikmannsins skiptir ekki máli:
Leikmaðurinn verður að taka fjarlægðarlausn vegna týnds bolta (regla 18.2b) því sú staðreynd að utanaðkomandi áhrif hreyfðu boltann kom ekki í ljós fyrr en eftir að leitartíminn rann út
Túlkun Vitað eða nánast öruggt/3 – Leikmaður veit ekki að bolta hans var leikið af öðrum leikmanni
Það verður að vera vitað eða nánast öruggt að bolta leikmanns hafi verið leikið af öðrum leikmanni sem röngum bolta, til að líta megi svo á að boltinn hafi verið hreyfður og að hann sé ekki týndur.
Til dæmis, í höggleik, slá leikmaður A og leikmaður B teighögg sín á sömu slóðir. Leikmaður A finnur bolta og leikur honum. Leikmaður B gengur áfram til að leita að sínum bolta en finnur hann ekki. Eftir þrjár mínútur leggur leikmaður B af stað til baka á teiginn til að leika öðrum bolta. Á leiðinni finnur leikmaður B bolta leikmanns A og veit þá að leikmaður A hefur leikið hans bolta.
Leikmaður A fær almenna vítið fyrir að leika röngum bolta og verður að leika næst sínum eigin bolta (regla 6.3c). Bolti leikmanns A var ekki týndur þótt báðir leikmennirnir hafi leitað í meira en þrjár mínútur því leikmaður A hóf ekki leit að sínum bolta, leitin var að bolta leikmanns B. Varðandi bolta leikmanns B var sá bolti týndur og leikmaður B verður að setja annan bolta í leik með fjarlægðarvíti (regla 18.2b), því hvorki var vitað né nánast öruggt þegar þriggja mínútna leitartíminn rann út að annar leikmaður hafi leikið boltanum.
Að halda á bolta og sleppa honum þannig að hann falli í loftinu, í þeim tilgangi að boltinn verði í leik.
Sleppi leikmaðurinn bolta án þess að ætla að setja hann í leik hefur boltinn ekki verið látinn falla og er ekki í leik (sjá reglu 14.4).
Í sérhverri lausnarreglu er vísað til ákveðins lausnarsvæðis þar sem láta verður boltann falla og þar sem hann verður að stöðvast.
Við að taka lausn verður leikmaðurinn að sleppa boltanum úr hnéhæð þannig að boltinn:
Svæðið þar sem leikmaður verður að láta bolta falla þegar hann tekur lausn samkvæmt reglu. Í hverri lausnarreglu er ætlast til að leikmaðurinn noti tiltekið lausnarsvæði, en stærð þess og staðsetning ræðst af þrennu:
Við að nota kylfulengdir til að ákvarða stærð lausnarsvæðis má leikmaðurinn mæla beint yfir skurð, holu eða sambærilega hluti og beint yfir eða í gegnum hluti (svo sem tré, girðingar, veggi, göng, niðurföll eða vökvunarstúta), en má ekki mæla beint í gegnum hallandi jörðu.
Sjá Verklag nefnda, hluta 2I (nefndin má leyfa eða krefjast þess að leikmaður noti fallreit sem lausnarsvæði þegar tiltekin lausn er tekin).
Skýring - Að ákvarða hvort bolti er innan lausnarsvæðis
Þegar ákvarðað er hvort bolti hafi stöðvast innan lausnarsvæðis (þ.e. innan einnar eða tveggja kylfulengda frá viðmiðunarstað, eftir því hvaða reglu er verið að beita) er boltinn innan lausnarsvæðisins ef einhver hluti boltans er innan einnar eða tveggja kylfulengda frá viðmiðunarstaðnum. Hins vegar er bolti ekki innan lausnarsvæðis ef einhver hluti boltans er nær holunni en viðmiðunarstaðurinn eða ef einhver hluti boltans hefur truflun frá aðstæðunum sem verið er að taka vítalausa lausn frá.(Skýringu bætt við 12/2018)
Lengd lengstu kylfunnar af þeim 14 (eða færri) sem leikmaðurinn hefur í fórum sínum á meðan umferðin er leikin (eins og leyft er í reglu 4.1b(1)), annarrar en pútters.
Til dæmis, ef lengsta kylfan (önnur en pútter) sem leikmaður hefur á meðan hann leikur umferð er 43 tommu (109,22 cm) langt teigtré er kylfulengdin 43 tommur fyrir þann leikmann í þeirri umferð.
Kylfulengdir eru notaðar til að skilgreina teig leikmannsins á hverri holu og til að ákvarða stærð lausnarsvæðis leikmannsins þegar hann tekur lausn samkvæmt reglunum.
Túlkun Kylfulengd/1 – Merking „kylfulengdar“ við mælingu
Þegar mælt er til að ákvarða lausnarsvæði er heildarlengd kylfunnar notuð, frá tá hennar að enda gripsins. Hins vegar, ef hlíf er yfir kylfuhausnum eða einhver hlutur er áfastur gripinu eru þeir ekki innifaldir þegar kylfan er notuð við mælingar.
Túlkun Kylfulengd/2 – Hvernig á að mæla þegar lengsta kylfan brotnar
Ef lengsta kylfan sem leikmaðurinn hefur í umferðinni brotnar er brotna kylfan samt sem áður notuð áfram til að ákvarða stærð lausnarsvæða leikmannsins. Hins vegar, ef lengsta kylfan brotnar og leikmanninum er heimilt að skipta henni út fyrir nýja kylfu (undantekning við reglu 4.1b(3)) og hann gerir það er ekki lengur litið á brotnu kylfuna sem lengstu kylfu leikmannsins.
Ef leikmaðurinn hefur umferð með færri en 14 kylfum og ákveður svo að bæta við kylfu sem er lengri en kylfurnar sem hann hóf leik með er nýja kylfan notuð við mælingar, svo fremi að hún sé ekki pútter.
Skýring - Merking hugtaksins „kylfulengd“ í leik samherja
Í leikformum þar sem samherjar koma við sögu má nota lengstu kylfu annars hvors samherjans, aðra en pútter, til að skilgreina stærð teigsins eða ákvarða stærð lausnarsvæðis.
(Skýringu bætt við 12/2018)
Þau fimm skilgreindu svæði sem eru á vellinum:
Lokastaðurinn á flötinni fyrir holuna sem verið er að leika:
Orðið „hola“ (þegar það er ekki notað sem skáletruð skilgreining) er notað víðsvegar í reglunum til að merkja þann hluta vallarins sem tengist tilteknum teig, flöt og holu. Leikur á holu hefst á teignum og lýkur þegar boltinn er í holu á flötinni (eða þegar reglurnar ákvarða að holunni sé lokið á annan hátt).
Að leggja bolta með því að setja hann niður og sleppa honum, í þeim tilgangi að boltinn verði í leik.
Setji leikmaðurinn boltann niður án þess að ætla boltanum að verða í leik hefur boltinn ekki verið lagður aftur og er ekki í leik (sjá reglu 14.4).
Þegar regla krefst þess að bolti sé lagður aftur ákvarðar reglan tiltekinn stað þar sem verður að leggja boltann aftur.
Túlkun Leggja aftur/1 – Ekki er hægt að leggja bolta aftur með kylfu
Til að bolti sé lagður aftur á réttan hátt verður að setja hann niður og sleppa honum. Þetta merkir að leikmaðurinn verður að nota hönd til að setja boltann aftur í leik á staðinn þaðan sem honum var lyft eða hann hreyfður.
Til dæmis, ef leikmaður lyftir bolta sínum af flötinni og leggur hann frá sér má leikmaðurinn ekki leggja boltann aftur með því að rúlla honum á réttan stað með kylfu. Geri hann það var boltinn ekki lagður aftur á réttan hátt og leikmaðurinn fær eitt högg í víti samkvæmt reglu 14.2b(2) (Hvernig leggja á bolta aftur) ef mistökin eru ekki leiðrétt áður en höggið er slegið.
Aðferðin og vítið þegar leikmaður tekur lausn samkvæmt reglum 17, 18 eða 19 með því að leika bolta þaðan sem hann sló síðasta högg sitt (sjá reglu 14.6).
Hugtakið fjarlægðarlausn merkir að leikmaðurinn bæði:
Hreyfing kylfunnar fram á við til þess að hitta boltann.
Þó hefur högg ekki verið slegið ef leikmaðurinn:
Hugtakið „að leika boltanum“ í reglunum hefur sömu merkingu og að slá högg.
Skori leikmannsins á holu eða í umferð er lýst sem fjölda „högga“ eða „leikin högg“, sem merkir bæði högg sem leikmaðurinn slær og öll vítahögg sem hann kann að hafa fengið (sjá reglu 3.1c).
Túlkun Högg/1 - Að ákvarða hvort högg var slegið
Ef leikmaður byrjar framsveifluna með kylfu í þeim tilgangi að hitta boltann telst það högg, jafnvel þegar:
Athafnir leikmannsins teljast ekki högg í eftirfarandi tilvikum:
Að leggja bolta með því að setja hann niður og sleppa honum, í þeim tilgangi að boltinn verði í leik.
Setji leikmaðurinn boltann niður án þess að ætla boltanum að verða í leik hefur boltinn ekki verið lagður aftur og er ekki í leik (sjá reglu 14.4).
Þegar regla krefst þess að bolti sé lagður aftur ákvarðar reglan tiltekinn stað þar sem verður að leggja boltann aftur.
Túlkun Leggja aftur/1 – Ekki er hægt að leggja bolta aftur með kylfu
Til að bolti sé lagður aftur á réttan hátt verður að setja hann niður og sleppa honum. Þetta merkir að leikmaðurinn verður að nota hönd til að setja boltann aftur í leik á staðinn þaðan sem honum var lyft eða hann hreyfður.
Til dæmis, ef leikmaður lyftir bolta sínum af flötinni og leggur hann frá sér má leikmaðurinn ekki leggja boltann aftur með því að rúlla honum á réttan stað með kylfu. Geri hann það var boltinn ekki lagður aftur á réttan hátt og leikmaðurinn fær eitt högg í víti samkvæmt reglu 14.2b(2) (Hvernig leggja á bolta aftur) ef mistökin eru ekki leiðrétt áður en höggið er slegið.
Að skipta um boltann sem leikmaðurinn notar við að leika holu, með því að láta annan bolta verða í leik.
Leikmaðurinn hefur skipt um bolta þegar hann setur nýja boltann í leik á einhvern hátt (sjá reglu 14.4) í stað upphaflegs bolta leikmannsins, hvort sem upphaflegi boltinn var:
Skiptibolti verður bolti í leik jafnvel þótt:
Sérhver staður á vellinum, annar en þar sem leikmaðurinn á eða má leika bolta sínum samkvæmt reglunum.
Dæmi um leik frá röngum stað eru:
Að leika bolta utan teigsins við að hefja leika á holu eða við að leiðrétta slík mistök felur ekki í sér að leika frá röngum stað (sjá reglu 6.1b).
Allir lausir náttúrulegir hlutir, svo sem:
Slíkir náttúrulegir hlutir teljast ekki lausir ef þeir:
Sértilvik:
Túlkun Lausung/1 – Staða ávaxtar
Ávöxtur sem er ekki lengur áfastur trénu eða runnanum er lausung, jafnvel þótt ávöxturinn komi af tré eða runna sem ekki finnst á vellinum.
Til dæmis er hálfétinn ávöxtur eða niðurskorinn ávöxtur og hýði sem hefur verið fjarlægt af ávexti lausung. Þegar slíkt er borið af leikmanninum er það þó útbúnaður leikmannsins.
Túlkun Lausung/2 – Þegar lausung verður að hindrun
Hægt er að umbreyta lausung í hindrun með smíði eða framleiðslu.
Til dæmis er trjábolur (lausung), fyrir tilstilli framleiðslu, orðinn að bekk (hindrun) þegar hann hefur verið klofinn og fætur festir við hann, í framleiðslu.
Túlkun Lausung/3 - Staða munnvatns
Leikmaðurinn hefur val um hvort hann lítur á munnvatn sem tímabundið vatn eða lausung.
Túlkun Lausung/4 – Lausung notuð í yfirborð vegar
Möl er lausung og leikmaður má fjarlægja lausung samkvæmt reglu 15.1a. Þessi réttur leikmannsins er óbreyttur þótt vegur verði manngerður þegar hann er þakinn möl og þar með óhreyfanleg hindrun. Sama gildir um vegi og stíga sem þaktir eru steinum, muldum skeljum, trjáflísum eða öðru slíku.
Í þessum tilvikum má leikmaðurinn:
Leikmaðurinn má einnig fjarlægja sumt af mölinni af veginum til að skoða þann kost að leika boltanum þar sem hann liggur, áður en leikmaðurinn ákveður hvort hann vilji taka vítalausa lausn.
Túlkun Lausung/5 – Lifandi skordýr loða aldrei við boltann
Þótt líta megi svo á að dauð skordýr loði við bolta er aldrei litið svo á að lifandi skordýr loði við bolta, hvort sem þau eru kyrr eða á hreyfingu. Því eru lifandi skordýr á bolta lausung.
Hindrun sem hægt er að færa með hóflegri fyrirhöfn og án þess að skemma hindrunina eða völlinn.
Ef hluti óhreyfanlegrar hindrunar eða hluta vallar (svo sem hlið, hurð eða hluti af föstum kapli) uppfyllir þessi tvö viðmið, er litið á þann hluta sem hreyfanlega hindrun.
Þó á þetta ekki við ef hreyfanlegum hluta óhreyfanlegrar hindrunar eða hluta vallar er ekki ætlað að hreyfast (svo sem laus steinn í grjótgarði).
Jafnvel þótt hindrun sé hreyfanleg má nefndin skilgreina hana sem óhreyfanlega hindrun.
Túlkun Hreyfanleg hindrun/1 - Flækingsbolti er hreyfanleg hindrun
Flækingsbolti er hreyfanleg hindrun.
Hreyfanleg stöng sem nefndin útvegar og sett er í holuna til að sýna staðsetningu holunnar. Fánar og annað efni eða aðrir hlutir sem festir eru við stöngina teljast hluti flaggstangarinnar.
Kröfur um flaggstöngina eru tilgreindar í útbúnaðarreglunum.
Túlkun Flaggstöngin/1 – Litið er á hluti sem flaggstöng þegar þeir eru notaðir sem flaggstöng
Ef manngerður eða náttúrulegur hlutur er notaður til að auðkenna staðsetningu holunnar er litið á hlutinn eins og flaggstöng.
Til dæmis, ef flaggstöngin hefur verið fjarlægð og leikmaður vill að einhver sýni sér staðsetningu holunnar en vill ekki sóa tíma í að sækja flaggstöngina má einhver annar auðkenna staðsetningu holunnar með kylfu. Með tilliti til beitingar reglnanna er þá litið á kylfuna sem flaggstöng.
Svæði á holunni sem leikmaður er að leika, sem:
Holan sem leikmaðurinn reynir að leika boltanum í er á flötinni. Flötin er eitt fimm skilgreindra svæða vallarins. Flatir annarra hola (sem leikmaðurinn er ekki að leika á sama tíma) eru rangar flatir og hluti almenna svæðisins.
Jaðar flatar ákvarðast af því hvar hægt er að sjá að svæðið sem er sérstaklega útbúið fyrir pútt hefst (svo sem þar sem gras hefur greinilega verið slegið til að sýna mörkin), nema nefndin skilgreini jaðarinn á annan hátt (svo sem með línum eða punktum).
Ef tvöföld flöt er notuð fyrir tvær ólíkar holur:
Þó getur nefndin skilgreint mörk sem skipta tvöföldu flötinni í tvær aðskildar flatir, þannig að þegar leikmaður leikur aðra holuna er sá hluti tvöföldu flatarinnar sem tilheyrir hinni holunni röng flöt.
Allt sem er notað, klæðst, haldið á eða borið af leikmanninum eða kylfubera hans.
Hlutir sem eru notaðir til að halda vellinum snyrtilegum, svo sem hrífur, eru aðeins útbúnaður á meðan haldið er á þeim eða þeir bornir af leikmanninum eða kylfubera hans.
Túlkun Útbúnaður/1 – Staða hluta sem einhver annar ber fyrir leikmanninn
Hlutir, aðrir en kylfur, sem einhver annar en leikmaðurinn eða kylfuberi hans ber eru utanaðkomandi áhrif jafnvel þótt þeir tilheyri leikmanninum. Hins vegar verða þeir hluti útbúnaðar leikmannsins um leið og verða í fórum leikmannsins eða kylfubera hans.
Til dæmis, ef leikmaður biður áhorfanda um að bera regnhlíf sína fyrir sig er regnhlífin utanaðkomandi áhrif á meðan hún er í fórum áhorfandans. Hins vegar, ef áhorfandinn afhendir leikmanninum regnhlífina verður hún hluti af útbúnaði leikmannsins.
Svæði á holunni sem leikmaður er að leika, sem:
Holan sem leikmaðurinn reynir að leika boltanum í er á flötinni. Flötin er eitt fimm skilgreindra svæða vallarins. Flatir annarra hola (sem leikmaðurinn er ekki að leika á sama tíma) eru rangar flatir og hluti almenna svæðisins.
Jaðar flatar ákvarðast af því hvar hægt er að sjá að svæðið sem er sérstaklega útbúið fyrir pútt hefst (svo sem þar sem gras hefur greinilega verið slegið til að sýna mörkin), nema nefndin skilgreini jaðarinn á annan hátt (svo sem með línum eða punktum).
Ef tvöföld flöt er notuð fyrir tvær ólíkar holur:
Þó getur nefndin skilgreint mörk sem skipta tvöföldu flötinni í tvær aðskildar flatir, þannig að þegar leikmaður leikur aðra holuna er sá hluti tvöföldu flatarinnar sem tilheyrir hinni holunni röng flöt.
Manngerður hlutur þegar hann er notaður til að merkja staðsetningu bolta sem ætlunin er að lyfta, svo sem tí, mynt, hlutur sem er búinn til sem boltamerki eða annar smáhlutur sem tilheyrir útbúnaði.
Þegar regla vísar til þess að boltamerki hafi hreyfst er átt við boltamerki sem búið var að leggja á völlinn til að merkja staðsetningu bolta sem hefur verið lyft, en ekki enn verið lagður aftur.
Allt leiksvæðið innan marka sem sett eru af nefndinni:
Völlurinn samanstendur af fimm skilgreindum svæðum vallarins.