Hvenær vítalaus lausn er leyfð
Þú mátt taka vítalausa lausn frá óeðlilegum vallaraðstæðum þegar truflun er frá slíkum aðstæðum hvar sem er á vellinum nema þegar boltinn er í vítasvæði eða þegar óeðlilegu vallaraðstæðurnar eru út af.
Truflun er fyrir hendi þegar eitt af eftirfarandi á við:
- Bolti þinn snertir eða er í eða á óeðlilegum vallaraðstæðum,
- Óeðlilegar vallaraðstæður trufla áþreifanlega fyrirhugaða stöðu leikmannsins eða fyrirhugað sveiflusvið, eða
- Boltinn er á flötinni og óeðlilegar vallaraðstæður á eða utan flatarinnar eru í leiklínunni.
Engin lausn ef augljóslega óraunsætt að leika boltanum. Engin lausn er veitt:
- Ef það væri augljóslega óraunsætt að leika boltanum þar sem hann liggur, vegna einhvers sem leikmanninum er ekki heimilt að taka vítalausa lausn frá (til dæmis ef leikmaðurinn getur ekki slegið högg vegna þess hvar boltinn liggur inni í runna), eða
- Ef truflunin er eingöngu vegna þess að leikmaður velur kylfu, stöðu, sveiflu eða leikátt sem er augljóslega óraunsætt miðað við kringumstæður.