Þú mátt ekki byrja umferð með fleiri en 14 kylfum, eða hafa fleiri en 14 kylfur á meðan umferðin er leikin.Ef þú byrjar umferð með færri en 14 kylfum máttu bæta við kylfum á meðan á umferðinni stendur, upp að 14 kylfu hámarkinu.Ef þú uppgötvar að þú ert brotlegur við þessa reglu með því að hafa fleiri en 14 kylfur verður þú tafarlaust að taka umframkylfuna eða -kylfurnar úr leik.Þetta gerir þú með því að viðhafast þannig að ljóst sé hvaða kylfur þú tekur úr leik áður en næsta högg er slegið (til dæmis með því að láta annan leikmann vita eða snúa kylfunni á hvolf í golfpokanum).Fylgið neðangreindum hlekk til að sjá hvaða refsingar eiga við um brot á þessari reglu.