Annar útbúnaður - bannað og leyft
Þú mátt nota útbúnað til aðstoðar við leik umferðar, en mátt ekki fá hugsanlegt forskot með því að:
- Nota útbúnað (annan en kylfu eða bolta) sem minnkar þörf fyrir nauðsynlega hæfni eða dómgreind sem er nauðsynleg til að takast á við leikinn, eða
- Nota útbúnað (þar á meðal kylfu eða bolta) á óeðlilegan hátt við að slá högg. Á „óeðlilegan hátt“ merkir á einhvern hátt sem er í grundvallaratriðum öðruvísi en útbúnaðurinn er hannaður til og er venjulega ekki talinn hluti þess að leika golf.
Þessi regla fjallar aðeins um notkun útbúnaðar. Hún setur engar skorður við hvaða útbúnað þú hefur í fórum þínum á meðan umferð er leikin.