Varabolti - Hvenær varabolti verður bolti í leik
Varabolti þinn verður að bolta í leik samkvæmt fjarlægðarlausn gegn víti í eftirfarandi tveimur tilfellum:
  • Þegar upphaflegur bolti þinn er týndur hvar sem er á vellinum utan vítasvæðis eða er út af.
  • Þegar varabolta þínum er leikið af stað sem er nær holunni en þar sem talið er að upphaflegur bolti þinn sé.