MYND 13.1f: VÍTALAUS LAUSN FRÁ RANGRI FLÖT
- Þegar truflun á sér stað vegna rangrar flatar, verður leikmaðurinn að taka fulla lausn án vítis.
- Myndin gerir ráð fyrir rétthentum leikmanni.
- Bolti A liggur á rangri flöt og nálægasti staðurinn fyrir fulla lausn vegna bolta A er á stað P1, sem verður að vera á sama svæði vallarins og þar sem upphaflegi boltinn stöðvaðist (í þessu tilviki á almenna svæðinu).
- Lausnarsvæðið er ein kylfulengd frá viðmiðunarstað, er ekki nær holu en viðmiðunarstaðurinn og verður að vera á sama svæði vallarins og viðmiðunarstaðurinn, P1.