Hlutir sem kylfuberi má ekki framkvæma
Kylfubera þínum er ekki heimilt að gera eftirfarandi fyrir þig:
- Gefa mótherjanum næsta högg, holu eða leikinn, eða sammælast með mótherjanum um hver sé staða leiksins ().
- Leggja bolta þinn aftur, nema kylfuberinn þinn hafi lyft boltanum eða hreyft hann ().
- Láta bolta þinn falla eða leggja bolta við að taka lausn ().
- Ákveða að taka lausn samkvæmt reglu (svo sem að dæma bolta ósláanlegan samkvæmt eða að taka lausn frá óeðlilegum vallaraðstæðum eða vítasvæði); kylfuberi þinn má ráðleggja þér í þessu efni en ákvörðunin verður að vera þín.
Viðeigandi regla - 10.3b(3)