Lausung
Þú mátt vítalaust fjarlægja lausung hvar sem er, á eða utan vallarins, og mátt gera það á hvaða hátt sem er (svo sem með hönd eða fæti, kylfu eða öðrum útbúnaði). En ef boltinn hreyfist við að þú fjarlægir lausung verður að leggja boltann aftur á upphaflegan stað (sem verður að áætla ef hann er óþekktur).
  • Ef boltinn sem hreyfðist hafði verið kyrrstæður annars staðar en á flötinni eða á teignum, færðu eitt vítahögg.
það eru tvær undantekningar þegar þú mátt ekki lausung: Undantekning 1 – Að fjarlægja lausung þar sem leggja verður bolta aftur. Undantekning 2 – Takmarkanir á að fjarlægja lausung, vísvitandi til að hafa áhrif á bolta sem er á hreyfingu.