Bolti (eða boltamerki) hreyfður - Af vindi, vatni eða öðrum náttúruöflum
Ef náttúruöflin valda því að bolti þinn á flötinni hreyfist, ræðst næsti staður þar sem leika á boltanum af því hvort boltanum hafði áður verið lyft og hann lagður aftur á flötinni:
  • Bolta áður lyft og hann lagður aftur – Þú verður að leggja boltann aftur á staðinn sem hann hreyfðist frá (sem þarf að áætla ef hann er óþekktur).
  • Bolta ekki áður lyft og hann lagður aftur – Þú verður að leika boltanum frá nýja staðnum.