Flaggstöngin - Bolti liggur upp við flaggstöngina í holunni
Þessi regla nær til bolta sem er leikið hvaðan sem er á vellinum, á eða utan flatarinnar.
Ef bolti þinn stöðvast upp við flaggstöngina, sem er í holunni:
- Ef einhver hluti boltans er í holunni, neðan yfirborðs flatarinnar, telst boltinn vera í holu.
- Ef enginn hluti boltans er í holunni, neðan yfirborðs flatarinnar, telst boltinn ekki vera í holu og skal leikið þar sem hann liggur. Ef flaggstöngin er fjarlægð og bolti þinn hreyfist er það vítalaust og leggja verður boltann aftur á brún holunnar.