Truflun frá óhreyfanlegri hindrun, eða tímabundnu vatni - Hvernig taka á lausn þegar bolti finnst ekki innan óeðlilegra vallaraðstæðna
Ef bolti þinn hefur ekki fundist og það er vitað eða nánast öruggt að boltinn stöðvaðist í eða á óeðlilegum vallaraðstæðum á flötinni máttu taka lausn samkvæmt reglu 16.1b. Þú gerir það með því að nota áætlaða staðinn þar sem boltinn skar síðast jaðar óeðlilegu vallaraðstæðnanna á flötinni sem viðmiðunarstað.