„Ready golf“. Í höggleik bæði máttu og ert hvattur til að leika þegar þú ert tilbúinn, en þó með fullri árvekni og á ábyrgan hátt, t.d. þegar:
Tveir eða fleiri leikmenn sammælast um að gera það til þæginda eða til að flýta fyrir,
Bolti leikmanns stöðvast mjög nálægt holunni og leikmaðurinn vill leika í holu, eða
Leikmaður er tilbúinn og fær um að leika á undan öðrum leikmanni sem á að leika næst samkvæmt venjulegri leikröð, svo framarlega að sá sem leikur í annarri röð skapi ekki hættu eða truflun fyrir aðra leikmenn.
Hins vegar, ef leikmaðurinn sem á að leika næst er tilbúinn og fær um að leika og gefur til kynna að hann vilji leika fyrst ættu aðrir leikmenn almennt að bíða þar til sá leikmaður hefur leikið.